Um

FínVín er netverslun sem sérhæfir sig í vönduðum léttvínum frá framúrskarandi framleiðendum sem ekki hafa áður verið í boði á Íslandi. Við leggjum áherslu á að versla við fjölskyldu víngerðir og veljum vín af alúð með áherslu á gæði, karakter og upplifun, aðallega frá Argentínu en einnig frá Frakklandi, Spáni og Ítalíu. Markmið okkar er að bjóða fín vín á frábæru verði og veita viðskiptavinum persónulega og trausta þjónustu við val á vínum fyrir ólík tilefni. Samkvæmt íslenskum lögum seljum við eingöngu einstaklingum sem hafa náð 20 ára aldri og leggjum ríka áherslu á örugga og vandaða meðferð pantana og upplýsinga.

Fín vín er fjölskyldu fyrirtæki sem varð til vegna áhuga okkar allra á vínum og bakgrunni þeirra. Okkar helstu áhugamál eru vín og matur, frá mismunandi löndum, og að upplifa eitthvað nýtt í hvert sinn sem við smökkum ný vín. Og þá upplifun viljum við deila með ykkur.