Fín vín

Vínsmökkunarkvöld hjá Fín vín – 8.900–9.900 kr. á mann

Vínsmökkunarkvöld hjá Fín vín – 8.900–9.900 kr. á mann

Venjulegt verð 8,900 kr
Venjulegt verð Söluverð 8,900 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Dagssetningar

Persónuleg vínupplifun í notalegu umhverfi.

Viltu dýpka þekkingu þína á víni, smakka vel valin gæðavín og eiga skemmtilega kvöldstund?

Hjá Fín vín bjóðum við upp á vínsmökkunarkvöld á fimmtudögum í október, nóvember og desember 2026. Smökkunarkvöldin  verða 8., 15., 22. og 29. október, 5., 12., 19. og 26. nóvember, og 3. og 10. desember.

Fyrirkomulag kvöldsins

  • 5–6 sérvalin vín með fróðlegri og afslappaðri leiðsögn
  • Léttir smáréttir og ostar sem valdir eru með tilliti til vínanna
  • Tímalengd: um það bil 2 klukkustundir
  • Fjöldi sæta: Lágmark 6 og að hámarki 8 gestir á hvert kvöld
  • Aldurstakmark: 20 ára

Staðsetning: Suðurlandsbraut 16, 2. hæð, 108 Reykjavík

Hvert kvöld er tileinkað ákveðnu viðfangsefni, til dæmis ákveðnu landi, ákveðnum framleiðendum eða jólamat og vínum. Nánari upplýsingar um þema birtast með hverri dagsetningu.

Viltu taka frá heilt kvöld fyrir hópinn? Hafðu samband á info@finvin.is ef þið viljið taka frá öll sætin eða óska eftir sérsniðinni dagsetningu.

Magn

Land

Skoða allar upplýsingar